Gjafainnpökkun er innifalin

Pöntun afgreidd innan 24 klst.

Frí sending - yfir 25.000 kr

Unicorn hálsfesti með náttúrusteinum

Verð kr28,700

Horn: 3 horn
Litur: Bronz/silfur
Vörulýsing
Unicorn skartgripalínan er hrá og töff, unnin úr oxideruðu bronzi og svörtu silfri. Hálsfesti úr Unicorn línunni okkar með Garnet rauðum náttúrusteinum. Festin er falleg ein og sér eða í bland með öðrum festum t.d. Fossflléttu.

▪Unicorn er smíðað úr bronzi sem er oxiderað.

▪Keðjan er úr silfri með svartri rhodium húð.

▪ Hægt er að velja um festi með 3 hornum & 4 Garnet náttúrusteinum eða með 5 hornum og 6 Garnet náttúrusteinum

▪Stærð horna: 24mm 

▪Keðjan er stillanleg frá 45-50cm.

UNICORN er handsmíðað á verkstæðinu okkar í Silfursmára.

▪ Sé skartgripurinn ekki til á lager, getur því afgreiðslutími verið allt frá tveimur dögum upp í eina viku.

 




Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Usually ready in 24 hours

Vörunúmer: 6-0133
Efniviður

Þessi skartgripur er úr oxideruðu bronsi og 925 sterling silfri sem hefur verið rhodiumhúðað svart.

Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn, hvort sem það er gylling, rhodium eða svart rhodium, gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Við gerum alltaf
okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur.

Pantanir yfir 25.000 kr:

Þegar þú pantar fyrir 25.000 kr eða meira bjóðum við upp á fría sendingu með
Dropp eða Póstinum á næsta afhendingarstað við þig.

Pantanir undir 25.000 kr:

Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 890 kr, bæði með
Póstinum og Dropp.

Verð á heimsendingu er 1200 kr með Dropp eða Póstinum.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf
skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á. Ef þú þarft
rýmri skiptifrest, settu athugasemd í körfuna. Athugið að áletruðum skartgripum
er ekki hægt að skipta/skila.