Kaðall armband

Vinsamlegast athugið að þessari vöru fæst hvorki skipt né skilað.
Útsöluverð kr7,350 Verð kr9,800

Litur
Eigum við að pakka inn?

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Usually ready in 24 hours

Vörunúmer: 14-003
Vörulýsing

Kaðall eru fallegar keðjur sem minna á kaðal, þær eru snúnar, fínlegar og demantsskornar sem gefur þeim skemmtilegan glans. Armböndin eru falleg ein og sér og með öðrum.

▪ Armbandið er úr silfri

▪ Fæst með rhodium húðun (silfurlitað) og svartri rhodium húðun 

▪ Falleg demantsskorin áferð

▪ Armbandið er stillanlegt frá 16-23cm.

 ▪ Kaðallinn er 3,5mm að breidd.

 


    Efniviður

    Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri. Fæst með 18kt gyllingu sem gerir silfrið gyllt. Með rhodium húðun sem er silfurlitað, en rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.

    Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn, hvort sem það er gylling, rhodium eða svart rhodium, gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.

    Umhirða skartgripa

    Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

    Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

    Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

    Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

    Frí gjafainnpökkun

    Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

    Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

    Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

    Sendingar og skiptifrestur

    Póstsending

    Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

    Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.