Stormur Signet hringur silfur - rhodium
Hver er hringastærðin þín?
Það er mjög algengt að fólk viti ekki hringastærðina sína. Það er þó nokkuð auðvelt að finna rétta hringastærð heima fyrir en það eru tvær leiðir sem við mælum með ef þú kemst ekki til okkar í mælingu.
Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa
Usually ready in 24 hours
Vörulýsing
Stormur signet hringurinn er klassík og einn sá flottasti ! Hægt er fá hann með eða án áletrunar.
Sé valin áletrun er handgrafið er í hringinn, fangamark eða stafur. Afgreiðslutími er allt að einni viku.
▪ Hringurinn er úr silfri, með rhodium, gróf en glansandi áferð.
▪ Einnig fáanlegur, oxideraður með mattri áferð.
▪ Flötur fyrir áletrun: 9*11mm.
▪ Handsmíðaður, fáanlegur í mörgum stærðum.
▪ Línan Stormur er fáanleg rhodium, oxi og 14kt gulli.
▪Skartgripirnir í Stormi eru handsmíðaðir á verkstæðinu okkar í Silfursmára.
▪ Sé skartgripurinn ekki til á lager, getur því afgreiðslutími verið allt frá tveimur dögum upp í eina viku.
Stormur er fyrsta herralínan okkar, hún er kraftmikil eins og nafnið gefur til kynna. Skartgripirnir í línunni eru fáanlegir með mattri /ox og glansandi/rhodium áferð - einnig er hluti línunnar fáanlegur í 14kt gulli.
Skargripirnir eru karlmannlegir, áferðin á hráefninu er gróf en um leið mild með dökku burstuðu áferðinni í bland við háglansandi fleti.
Efniviður
Allar okkar vörur eru einungis gerðar úr eðalmálmum og hannaðar á verkstæði Lovísu á Íslandi.
Hvernig á að hugsa um skartgripi?
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY L. Hægt er að koma með BY L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmislegir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Fyrir frekari upplýsingar um meðferð skartgripa ekki hika við að hafa samband, lovisa@bylovisa.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan. Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skilafrestur
Póstsending
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með póstinunum er hægt er að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr. bæði með Póstinum og Dropp.

