Criss hálskeðja - oxi

kr16,500

Vörulýsing

Criss er ein af herrakeðjunum okkar,  klassísk keðja sem aldrei fer úr tísku.  Gott bil er á milli hlekkja þar sem þeir tengjast og því mjög þægilegt að bera keðjuna.

▪ Hálskeðjan er úr silfri með mattri áferð og oxideringu.

▪ Hálskeðjan er 50 cm en stillanleg, heildarlengd 60cm.

▪ Herrakeðjurnar eru fáanlegar rhodium og oxideraðar.

 Fyrsta herralínan okkar er mætt - í keðjuflokknum eru margar týpur, fínlegar, grófar, glansandi eða mattar.

Efniviður

Allar okkar vörur eru einungis gerðar úr eðalmálmum, það er 925 silfri eða 14kt gulli & hvítagulli. 

Silfrið er svo hægt að fá með 18kt gyllingu sem gerir það gulllitað, rhodium húðað eða með svartri rhoodium húð. Rhodium varnar því að það falli á silfrið.

Hvernig á að hugsa um skartgripi?

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY L. Hægt er að koma með BY L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmislegir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@bylovisa.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan. Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skilafrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með póstinunum er hægt er að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr. bæði með Póstinum og Dropp.