Kaðall hálsmen - rhodium
Gat ekki hlaðið afhendingarstað
Vörulýsing
Kaðall eru fallegar keðjur sem minna á kaðal, þær eru snúnar, fínlegar og demantsskornar sem gefur þeim skemmtilegan glans. Festarnar eru fallegar einar og sér og með öðrum menum.
▪Falleg demantsskorin áferð
▪ Festin er stillanlegt frá 42-55cm.
▪Kaðallinn er 3,5mm að breidd.
▪Kaðall er fáanlegur rhodium, gylltur og svartur.
Efniviður
Allar okkar vörur eru einungis gerðar úr eðalmálmum, það er 925 silfri eða 14kt gulli & hvítagulli.
Silfrið er svo hægt að fá með 18kt gyllingu sem gerir það gulllitað, rhodium húðað eða með svartri rhoodium húð. Rhodium varnar því að það falli á silfrið.
Hvernig á að hugsa um skartgripi?
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY L. Hægt er að koma með BY L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmislegir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@bylovisa.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan. Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skilafrestur
Póstsending
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með póstinunum er hægt er að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr. bæði með Póstinum og Dropp.