Haf hálsfesti - rhodium

kr32,800

Vörulýsing

Haf hálsfestin er einstaklega falleg, festin er flöt og liggur því vel á hálsi.  Mynstrið í festinni er ómótstæðilegt!

▪ Festin er stillanleg frá 40-50cm

▪ Mynstrið er einstaklega fallegt

▪ Haf festin er fáanleg gyllt og rhodium

Festin er fullkomin ein og sér en það er líka gaman að raða henni saman með öðrum Haf menum.  

 

Efniviður

Þessi keðja er úr 925 sterling silfri með rhodium húð. Rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.

Rhodium húðin endist ekki að eilífu né mun hún koma alveg í veg fyrir að það falli á silfrið, en hægt er að pússa skartgripinn, "dippa" honum í silfurhreinsi heima fyrir eða koma með hann til okkar í þrif.

Þessi keðja er framleidd á Ítalíu fyrir BY•L skartgripi. Ítalar eru
sérfræðingar í keðjum og hafa verið leiðandi í tækni og framleiðslu keðja í
áraraðir. Það kom því ekkert annað til greina en að finna góða og trausta
samstarfsaðila á Ítalíu sem sjá um framleiðslu á öllum okkar keðjum.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.