Stilla armband 5 dropar - gyllt

kr12,600

Vörulýsing

 

Armbandið er fínlegt með hangandi dropum, fullkomið eitt og sér en líka gaman að mixa því með armböndum úr öðrum línum eins og Fossfléttu.

▪ Armbandið er stillanlegt frá 18-23cm.

▪ Fínleg keðja með 5 dropum.

▪ Stærð dropa: 8mm.

▪ Armböndin eru fáanleg rhodium og gyllt.

Mjúka afslappaða form dropans er einkenni Stillu. Í skartgripunum blandast saman eðalmálmar og fallegir náttúrusteinar í undurfögrum litatónum. 

Stilla er veðurfar,  fátt er fallegra en kyrrð og værð í stillu. 

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri með 18kt gullhúð.

Gullhúðin getur dofnað með tíð og tíma sem er alveg eðlilegt þegar eðalmálmar eru húðaðir. Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar og endurhúða skartgripinn gegn vægu gjaldi ef til þess kemur. Skartgripurinn er ekki ónýtur ef húð dofnar.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.