Fiskifléttulokkar 18mm - rhodium
Gat ekki hlaðið afhendingarstað
Vörulýsing
Klassískir eyrnalokkar með sígilda & fallega fiskibeinamynstrinu. Lokkarnir passa vel með Fiski- og Fossfléttunum okkar og í raun passa þeir við allt !
▪ Þvermál lokkanna er 18mm og breiddin 4mm.
▪ Læsingin er með vandaðri löm og krækju.
▪ Lokkarnir eru fáanlegir gylltir, rhodium & svart rhodium.
- Flétturnar eru einnig til í 14kt gulli & hvítagulli
Efniviður
Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri með rhodium húð. Rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Póstsending
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.