Fiskiflétta hálsfesti breið - gyllt
Gat ekki hlaðið afhendingarstað
Vörulýsing
Fiskiflétta er einstaklega falleg fléttuð hálsfesti með fiskibeinamynstri. Demantsskurður er á fléttunni sem gefur henni fallega, glansandi áferð.
Breiða Fiskifléttan er falleg ein og sér en líka með öðrum festum, t.d Fossfléttu, Haf hálsmenum eða Stillu.
▪ Festin er stillanleg frá 40-50cm.
▪ Festin er 8mm að breidd.
▪ Fiskiflétta er fáanleg rhodium, svört rhodium & með 18kt gyllingu.
- einnig fást Fléttur í 14kt gulli & hvítagulli.
Efniviður
Þessi keðja er úr 925 sterling silfri með 18kt gullhúð.
Þessi keðja er framleidd á Ítalíu fyrir BY•L skartgripi. Ítalar eru sérfræðingar í keðjum og hafa verið leiðandi í tækni og framleiðslu keðja í áraraðir. Það kom því ekkert annað til greina en að finna góða og trausta samstarfsaðila á Ítalíu sem sjá um framleiðslu á öllum okkar keðjum.
Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Póstsending
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.