Stormur Signet hringur 14kt gull

kr124,500

ATH. afgreiðsla á þessum skartgrip getur verið allt að einni viku.
Vörulýsing

Stormur signet hringurinn er klassík og einn sá flottasti !  Handgrafið er í hringinn fangamark eða stafur. Afgreiðslutími er allt að einni viku. 

▪ Hringurinn er úr 14kt gulli (585)

▪ Flötur fyrir áletrun: 9*11mm

▪ Handsmíðaður, fáanlegur í mörgum stærðum

▪ Línan Stormur er fáanleg rhodium, oxi og 14kt gulli

Skartgripirnir í Stormi eru handsmíðaðir á verkstæðinu okkar í Silfursmára.

▪ Sé skartgripurinn ekki til á lager, getur því afgreiðslutími verið allt frá tveimur dögum upp í eina viku.

Stormur er fyrsta herralínan okkar, hún er kraftmikil eins og nafnið gefur til kynnaSkartgripirnir í línunni eru fáanlegir með mattri /ox og glansandi/rhodium áferð  - einnig er hluti línunnar fáanleg í 14kt gulli.

Skargripirnir eru karlmannlegir, áferðin á hráefninu er gróf en um leið mild út af dökku burstuðu áferðinni í bland við háglansandi fleti. 

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 14kt gulli.

Við notum 14kt gull vegna þess að það er harðara en 18kt gull og hentar því einkar vel fyrir skartgripi sem notaðir eru dags daglega.

Við bjóðum þó upp á sérsmíði með 18kt gulli ef viðkomandi óskar eftir því.

Hvernig á að hugsa um skartgripi?

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY L. Hægt er að koma með BY L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmislegir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Fyrir frekari upplýsingar um meðferð skartgripa ekki hika við að hafa samband, lovisa@bylovisa.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan. Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skilafrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með póstinunum er hægt er að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr. bæði með Póstinum og Dropp.