Frost armband hringlaga hlekkir - gyllt

kr15,800

Vörulýsing

Skartgripirnir í Frost eru fallega hrímaðir með demantsskurði sem gefur þeim skemmtilega glansandi áferð.

▪925 silfur með 18kt gyllingu

▪Einingarnar í armbandinu eru hringlaga 6mm

▪Armbandið er 23cm og stillanlegt

▪Frost armböndin eru fáanleg gyllt, rhodium

 


Efniviður

Þessi keðja er úr 925 sterling silfri með 18kt gullhúð.

Þessi keðja er framleidd á Ítalíu fyrir BY•L skartgripi. Ítalar eru sérfræðingar í keðjum og hafa verið leiðandi í tækni og framleiðslu keðja í áraraðir. Það kom því ekkert annað til greina en að finna góða og trausta samstarfsaðila á Ítalíu sem sjá um framleiðslu á öllum okkar keðjum.

Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar með skartgripi í viðhald eða hreinsun t.d. endurhúða skartgripinn gegn vægu gjaldi ef til þess kemur.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.