Fairy Tale fínleg hálsfesti - 14kt gull
Gat ekki hlaðið afhendingarstað
Vörulýsing
Einstaklega fínleg hálsfesti úr 14kt gulli.
▪Festin er dematsskorin sem gefur skemmtilega og fallega áferð.
▪Háslfestin er stillanleg frá 41 - 46cm.
▪Festin er falleg ein og sér eða í bland með öðrum.
Efniviður
Þessi skartgripur er úr 14kt gulli.
Við notum 14kt gull vegna þess að það er harðara en 18kt gull og hentar því einkar vel fyrir skartgripi sem notaðir eru dags daglega.
Við bjóðum þó upp á sérsmíði með 18kt gulli ef viðkomandi óskar eftir því.
Umhirða gullskartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma þá í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L eða í skartgripaskrínum. Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Gullskartgripi (14kt gull +) má fara með í sund og sturtu án þess að falli á þá. Það er þó margt annað sem hefur áhrif, td húðfita, krem, olíur eða ilmvatn. Ef þú ert mikið með skartgripinn þinn kemur á hann fita sem hægt er að þrífa af með sápuvatni, mjúkum bursta, hreinsiefnum og klútum - einnig getur gerst að gull dökknar aðeins í vatninu okkar hér á Íslandi.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan. Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum eða Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.