Giftingarhringur - Signature - 2mm til 8mm - 14kt hvítagull
Gat ekki hlaðið afhendingarstað
Vörulýsing
Signature hringurinn er okkar fullkomna form á giftingarhring. Hann er hálfkúptur að utan og innan sem gerir hann mjög þægilegan í daglegu lífi og er klassískur og tímalaus.
- ▪ 14kt Hvítagull (585)
- ▪ Sjö breiddir í boði frá 2-8mm
- ▪ Áletrun er innifalin í verðinu á öllum okkar giftingarhringum
- ▪ Samsetning hringapars getur verið í mismunandi formi, breidd og gulllit.
- ▪ Afhendingartími er mismunandi en gefinn út daginn eftir pöntun.
Efniviður
Giftingarhringarnir okkar á lager eru smíðaðir úr 14kt gulli (585).
Við bjóðum einnig upp á sérsmíði úr 18kt gulli.
Hvernig á að hugsa um skartgripi?
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY L. Hægt er að koma með BY L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmislegir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Fyrir frekari upplýsingar um meðferð skartgripa ekki hika við að hafa samband, lovisa@bylovisa.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan. Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skilafrestur
Póstsending
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með póstinunum er hægt er að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr. bæði með Póstinum og Dropp.