Stormur hringur 5mm - oxi

kr14,500

Stærð

Þú getur sótt í BY•L - skartgripir by lovisa

Usually ready in 24 hours

Vörulýsing

Stormur einfaldi hringurinn er fullkominn einn og sér, einnig flott að stafla honum með öðrum hringum úr línunni.

▪ Hringurinn er úr silfri oxideraður með mattri áferð.

▪ 5mm breiður * 1,8mm á þykkt.

▪ Handsmíðaður, fáanlegur í mörgum stærðum.

▪ Línan Stormur er fáanleg rhodium, oxi og 14kt gulli.

Skartgripirnir í Stormi eru handsmíðaðir á verkstæðinu okkar í Silfursmára.

▪ Sé skartgripurinn ekki til á lager, getur því afgreiðslutími verið allt frá tveimur dögum upp í eina viku.

Stormur er fyrsta herralínan okkar, hún er kraftmikil eins og nafnið gefur til kynnaSkartgripirnir í línunni eru fáanlegir með mattri /ox og glansandi/rhodium áferð  - einnig er hluti línunnar fáanlegur í 14kt gulli.

Skargripirnir eru karlmannlegir, áferðin á hráefninu er gróf en um leið mild út af dökku burstuðu áferðinni í bland við háglansandi fleti. 


 

Efniviður

Þessi keðja er úr 925 sterling silfri sem búið er að oxidera, kallast einnig burstað silfur.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.