Örk threaders litlir með einni perlu - rhodium

kr14,900

Vörulýsing

 

Eyrnalokkar í Örk línunni okkar sem þræðast fallega í gegnum eyrað.  

▪Hægri og vinstri lokkurinn eru ekki eins sem gerir þá sérstaka og töff.

▪Ferksvatnsperla er á öðrum lokknum.

▪Eyrnalokkarnir eru fáanlegir rhodium og gylltir

▪Örk línan er handsmíðuð á verkstæðinu okkar í Silfursmára.

▪Sé skartgripurinn ekki til á lager, getur því afgreiðslutími verið allt frá 2 dögum upp í eina viku. 

Línan er fjölbreytt hrá, töff og elegant allt í bland! Formin og áferðin eru skemmtileg og blandast fallega saman og mynda heild. Sjón er sögu ríkari.

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri með rhodium húð. Rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.