Tails hálsfesti - svört

kr15,800

Vörulýsing

Tails hálsfestin er fínleg kúlufesti með demantsskurði sem gefur henni fallega áferð.  Festin er fullkomin ein og sér en einnig gaman að mixa henni með festum í öðrum línum, t.d Frost.

▪ Keðjan er stillanleg frá 40-50cm

▪ Breidd á kúlum er 2mm

▪ Tails keðjurnar eru fáanlegir gylltar, hodium og svartar.

Tails skartgripirnir eru handsmíðaðir á verkstæðinu okkar í Garðabæ.  Skartgripalínan er breið, allt frá mjög fínlegu yfir í gróft.  Mörgum skartgripum í línunni er hægt að raða saman með skartripum úr Tails eða öðrum skartgripalínum, það kemur skemmtilega út.

Efniviður

Þessi keðja er úr 925 sterling silfri með svartri rhodium húð.

Rhodium húðin getur dofnað með tíð og tíma sem er alveg eðlilegt þegar eðalmálmar eru húðaðir. Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar og endurhúða skartgripinn gegn vægu gjaldi ef til þess kemur. Skartgripurinn er ekki ónýtur ef húðin dofnar.

Þessi keðja er framleidd á Ítalíu fyrir BY•L skartgripi. Ítalar eru
sérfræðingar í keðjum og hafa verið leiðandi í tækni og framleiðslu keðja í
áraraðir. Það kom því ekkert annað til greina en að finna góða og trausta
samstarfsaðila á Ítalíu sem sjá um framleiðslu á öllum okkar keðjum.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.