Stilla armband Red quartz & Garnet - rhodium

kr14,600

Vörulýsing

 

Dropalaga náttúrusteinn er í armbandinu ásamt fjórum minni.  Fínlegt armband sem nýtur sín vel eitt og sér en einnig með öðrum.

▪ Armbandið er stillanlegt frá 18-23cm.

▪ Fínleg keðja með 5 náttúrusteinum.

▪ 4mm Garnet og 10mm dropalaga Red quartz.

▪ Armböndin eru fáanleg rhodium og gyllt og með mismunandi náttúrusteinum.

Mjúka afslappaða form dropans er einkenni Stillu. Í skartgripunum blandast saman eðalmálmar og fallegir náttúrusteinar í undurfögrum litatónum. 

Stilla er veðurfar,  fátt er fallegra en kyrrð og værð í stillu. 

Efniviður

Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri með rhodium húð. Rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.