Mánaðarblóm hálsfesti - gyllt
Gat ekki hlaðið afhendingarstað
Vörulýsing
Fínlegt hálsmen með einkennisblómi hvers mánaðar grafið sem mynd framan á sporöskjulagað silfurmenið. Mánuðurinn sem við á er grafinn með fallegu letri aftan á menið. Sérstaklega falleg og skemmtileg gjöf fyrir alla aldurshópa.
▪ Keðjan og menið eru sterling silfur 935
▪ Menið sjálft er 14mm að lengd
▪ Keðjan er stillanleg frá 45-50cm
▪ Hálsmenin eru fáanleg gyllt og rhodium
Efniviður
Þessi skartgripur er úr 925 sterling silfri með 18kt gullhúð.
Gullhúðin getur dofnað með tíð og tíma sem er alveg eðlilegt þegar eðalmálmar eru húðaðir. Við þjónustum alla okkar skartgripi og því er hægt að koma til okkar og endurhúða skartgripinn gegn vægu gjaldi ef til þess kemur. Skartgripurinn er ekki ónýtur ef húð dofnar.
Umhirða skartgripa
Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.
Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.
Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.
Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.
Frí gjafainnpökkun
Láttu okkur dekra við sendinguna þína.
Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).
Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.
Sendingar og skiptifrestur
Póstsending
Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.
Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.