Fiskiflétta armband mjótt - rhodium

kr13,800

Vörulýsing

Einstaklega fallega fléttað armband með fiskibeinamynstri. Demantsskurður er á Fiskifléttunni sem gefur henni fallega, glansandi áferð.

Mjótt Fiskifléttuarmband er fullkomið eitt og sér en líka gaman að bera það með armbandi úr annarri skartgripalínu t.d Haf, Fossfléttu eða Tails.

▪ Armbandið er stillanlegt frá 16 - 22cm

▪ Armbandið er 6 mm breitt.

▪ Fiskiflétta er fáanleg rhodium, svört rhodium & með 18kt gyllingu.

- einnig fást Fléttur í 14kt gulli & hvítagulli.

 

 

Efniviður

Þessi keðja er úr 925 sterling silfri með rhodium húð. Rhodium ver silfrið gegn oxun, þ.e. að það fellur síður á það.

Rhodium húðin endist ekki að eilífu né mun hún koma alveg í veg fyrir að það falli á silfrið, en hægt er að pússa skartgripinn, "dippa" honum í silfurhreinsi heima fyrir eða koma með hann til okkar í þrif.

Þessi keðja er framleidd á Ítalíu fyrir BY•L skartgripi. Ítalar eru
sérfræðingar í keðjum og hafa verið leiðandi í tækni og framleiðslu keðja í
áraraðir. Það kom því ekkert annað til greina en að finna góða og trausta
samstarfsaðila á Ítalíu sem sjá um framleiðslu á öllum okkar keðjum.

Umhirða skartgripa

Mikilvægt er að hugsa vel um skartgripina sína. Við mælum með því að geyma skart í upprunalegum öskjum sem koma frá BY•L.

Hægt er að koma með BY•L skartgripi til okkar í verslun í eftirlit ef byrjað er að sjá á þeim.

Athugið að það eru ýmsir þættir í daglegu lífi sem getur haft áhrif á skartgripina þína. T.d. geta efni eins og klór, hársprey og ilmvötn orsakað hraðari oxun á eðalmálmum. Því mælum við með að taka alltaf af sér hringa og annað skart við heimilisstörf eða íþróttaiðkun.

Frekari upplýsingar um meðferð skartgripa má finna hér eða hafa samband, lovisa@byl.is.

Frí gjafainnpökkun

Láttu okkur dekra við sendinguna þína. 

Þú getur óskað eftir ókeypis gjafainnpökkun með því að haka í boxið hér að ofan (þar sem varan er sett í körfu).

Ef þú vilt tækifæriskort með persónulegum skilaboðum, skildu eftir athugasemd í lokaskrefi pöntunar.

Sendingar og skiptifrestur

Póstsending

Við sendum allar vörur frá okkur með Póstinum sem og Dropp. Með Póstinunum er hægt að velja um heimsendingu, á næsta pósthús eða póstbox. Við gerum alltaf okkar allra besta við að koma netpöntunum hratt og örugglega frá okkur. Verð á sendingum á næsta afhendingarstað við þig er 700 kr, bæði með Póstinum og Dropp.

Það er 14 daga skiptifrestur á öllum pöntunum og setjum við alltaf skiptimiða með þeirri dagsetningu sem pöntunin er tekin saman á.