Við erum afar ánægð að segja frá því að Páll Sveinsson gullsmiður er genginn til liðs við okkur. Ráðning Páls er liður í stefnu okkar um að byggja upp meira framboð á gullsmíði og sérverkefnum á sviði demantsskartgripa. Páll er margreyndur gullsmiður með áratuga reynslu af hönnun, smíði og viðgerðum skartgripa. Hann hefur starfað hjá Jóni & Óskari um langt árabil og jafnframt rekið eigin skartgripalínu, PS Masterpiece, þar sem áhersla er lögð á nákvæmni og vandað handverk. Með ráðningu Páls til BY•L er PS Masterpiece nú fáanlegt í verslun BY•L í Silfursmára 8 og hér á vefverslun.
„Ég hlakka til að taka þátt í þessari spennandi vegferð hjá BY•L. Mér finnst ánægjulegt að geta miðlað af reynslu minni á þessu sviði og verið hluti af flottu teymi gullsmiða sem þar er fyrir. Sérhæfing mín liggur í viðgerðum og sérsmíði, ekki síst gull- og demantsskartgripum, það verður því aukin áhersla á slíka þjónustu hjá BY•L. Síðast en ekki síst þá hlakka ég til að vinna með teymi sem leggur þetta mikla áherslu á gæði, frumleika og þjónustu,“ - Páll Sveinsson gullsmíðameistari.
Við bjóðum Pál sérstaklega velkominn í teymið!
Hér má lesa tilkynningu sem birtist í Viðskiptablaðinu.










