HJÁ BY•L STARFA FAGLÆRÐIR GULLSMIÐIR

LOVÍSA HALLDÓRSDÓTTIR OLESEN

Lovísa byrjaði á samning í faginu árið 2004, hún lauk sveinsprófi í gull og silfursmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík 2007 og meistararéttindum í kjölfarið. Allt frá barnæsku hefur Lovísa elskað ýmsar skapandi greinar og snemma ljóst að listaleiðin væri brautin í lífinu, hún lauk einmitt stúdentsprófi af listasviði/fatahönnun árið 2002.

Lovísa sækir áhrif sín mest úr hversdagslífinu þar sem tvinnast saman klassík og nýjir straumar. Litir, hráefni og form hafa alltaf verið aðalatriði í hönnuninni sem setur mark sitt á fjölbreytileikann í hennar smíði og hönnun.   

Árið 2013 fór Lovísa í rekstur undir eigin vörumerki eftir að hafa unnið við fagið í nokkur ár. Fyrsta verslunin var lítil kósý verslun í bílskúrnum heima á Garðaflötinni en árið 2021 flutti búðin og verkstæðið í Vinastræti í Garðabæ.   

Haustið 2024 var aftur flutt, glæsileg verslun og verkstæði opnaði við Silfursmára 8 í Kópavogi og um leið breytti Lovísa merki og nafni fyrirtækisins í BY•L.  


TEAM BY•L

Afgreiðsla & fagurkerar

Aldís Nanna

Arna Ösp

Bryndís

Dísa Lea

Guðný

s. 792 8282

Framkvæmdastjóri & skrifstofa

Þorsteinn Eyfjörð

thorsteinn@byl.is

Gullsmiðir

Lovísa Halldórsdóttir Olesen

lovisa@byl.is

Lena Rut Kristjánsdóttir

lena@byl.is

Markaðs- & vefstjóri

Vera Dögg Höskuldsdóttir

vera@byl.is

Samfélagsmiðla- & viðburðarstjóri

Alexandra Sif Nikulásdóttir

alesif@byl.is

silfursmári 8

Sjáumst í silfursmáranum

Hjá Lovísu starfar frábært starfsfólk og metnaður allra er mikill. Við leggjum mikið upp úr góðri upplifun viðskiptavina og  veitum alltaf topp þjónustu í hlýlegu umhverfi. Það er upplifun að koma í búðina okkar, við tökum vel á móti þér.